Hugo Ekitike og Kylian Mbappé skoruðu mörkin er Frakkland lagði Brasilíu að velli í vináttulandsleik í gærkvöldi.
Frakkar komust í tveggja marka forystu en misstu mann af velli í leiðinni og léku því manni færri nánast allan seinni hálfleikinn.
Brassar fengu góð færi til að skora en þeim tókst aðeins að skora eitt mark svo lokatölur urðu 1-2.
Ekitike, sem leikur með Liverpool á Englandi, var ánægður að leikslokum og talaði um þá góðu tengingu sem hann hefur við Mbappé, sem er stjörnuleikmaður Real Madrid næstu andstæðinga Liverpool í Meistaradeildinni.
„Við Mbappé erum með frábæran skilning á vellinum. Hann sagði mér að spila af frelsi og það gekk upp, ég skemmti mér mjög vel. Við vörðum miklum tíma saman hjá PSG," sagði Ekitike meðal annars eftir sigurinn.
Mbappé tjáði sig einnig en hann hefur verið að glíma við meiðsli síðustu vikur og var ekki búist við að hann myndi byrja leikinn gegn Brasilíu, sem hann gerði þó. Mbappé segist einnig vilja spila næsta æfingalandsleik Frakka sem er gegn Kólumbíu á sunnudag.
„Mér líður vel og ég vil líka spila leikinn gegn Kólumbíu. Ég er alltaf glaður þegar ég fæ að spila."
26.03.2026 23:40
Ekitike og Mbappe afgreiddu Brasilíu
Athugasemdir



