Fernandes í stað Fernandes? - Owen vill Alonso - Chelsea leitar til systurfélagsins - Ítalskur bakvörður til Liverpool? - Arsenal í baráttuna um Gordon
Jökull: Menn klára páskaeggin í kvöld og svo erum við klárir
Álitið - Hvaða lið veldur mestu vonbrigðum?
Hallgrímur Mar eftir að hafa byrjað á bekknum: „Hvað heldur þú?“
KA menn klöppuðu hreindýrum fyrir 0-5 sigurinn
Kristófer Ingi: Ekkert heyrt um samning og fókusa á að spila
Todor Hristov eftir 0-5 tap: „Aðeins dýrara lið en okkar“
Linta svekktur: Ánægður með spilamennskuna
Gylfi fékk högg og bólgnaði - „Það þarf bara að skoða það“
Alex Freyr: Draugar síðustu leikja sem koma
„Of margir sem eru spurningamerki sem er ekki gott þegar mótið er að hefjast“
Venni eftir sigur í Eyjum: Er alveg í skýjunum
Elías Már um samkeppnina: Erum tveir ólíkir framherjar og styðjum við bakið á hvor öðrum
Óli Skúla um danskan framherja: Þú ert þá að segja mér fréttir
Siggi Höskulds: Það er fokking óþolandi
„Ákvað að skjóta í markmanninn og það virkaði"
Þrennt sem stóð upp úr hjá Jóa Kalla
Álitið: Hver verður stoðsendingahæstur?
Bestur í Mjólkurbikarnum - „Klúbbur sem á ekkert að vera í þessari deild“
Tap í uppbótartíma en Konni er stoltur
Fyrirliðinn Eiður Aron: Við ætlum að vinna þessa deild
   fim 31. ágúst 2017 10:08
Elvar Geir Magnússon
Helsinki
Björn Bergmann: Ég verð áfram hjá Molde
Icelandair
Björn Bergmann færir sig ekki um set í dag. Hér er hann á æfingu Íslands í morgun.
Björn Bergmann færir sig ekki um set í dag. Hér er hann á æfingu Íslands í morgun.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Björn Bergmann Sigurðarson, sóknarmaður íslenska landsliðsins, hefur verið frábær með Molde í Noregi á þessu tímabili. Þjálfari hans, Ole Gunnar Solskjær, hefur sagt að Björn sé besti leikmaður deildarinnar.

„Þetta er búið að vera rosalega gaman, ég spila alla leiki og mér hefur tekist að skora nokkur mörk. Við erum í fjórða sæti núna en það er mikið eftir og vonandi náum við öðru sætinu," segir Björn en Fótbolti.net ræddi við hann í Helsinki í dag.

Frammistaða hans hefur vakið athygli stærri félaga og voru einhverjar hræringar í hans málum í gær. Björn segir að nú sé hinsvegar ljóst að hann sé ekki á förum frá Molde í þessum glugga.

„Einbeitingin er á leikinn gegn Finnum. Það var eitthvað í gangi í gær en það var slökkt í því svo ég verð áfram hjá Molde. Glugginn í Noregi er lokaður svo Solskjær gæti ekki keypt sér nýjan leikmann í staðinn fyrir mig. Hann þarf að ná einu af þremur efstu sætunum og kannski vinna bikarinn, ég skil hann mjög vel að vilja ekki missa leikmann núna," segir Björn sem er sáttur við að klára tímabilið með Molde.

„Mér líður mjög vel hjá Molde, mér hefur gengið vel þarna og vonandi gengur eins vel það sem eftir er af tímabilinu."

Viðtalið við Björn má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan en þar tjáir hann sig meðal annars um landsleikinn gegn Finnlandi sem verður á laugardaginn og hversu ánægður hann sé með að fá frí frá gervigrasinu í Noregi.
Slapp
banner
banner