,,Ég er mjög ánægður með að vinna leikinn og það stendur uppúr," sagði Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari Íslands á blaðamannafundi eftir 1-0 sigur á Kýpur á Laugardalsvelli í kvöld.
Fréttamannafundinn má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan
Fréttamannafundinn má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan
Lestu um leikinn: Ísland 1 - 0 Kýpur
Mark Íslands skoraði Kolbeinn Sigþórsson á fjórðu mínútu leiksins. ,,Það var vel gert hjá Jóa og Kolla. Fínt uppspil," sagði Ólafur.
,,Um leið og við komumst yfir verða menn nervous-ir og löngunin til að vinna er náttúrulega mikil. Þeir detta svolítið til baka og menn voru náttúrulega mjög þreyttur."
,,Leikurinn í Noregi sat mjög í mönnum og þá meina ég líkamlega. Þeir voru líka að spila leik í vikunni og voru líka þreyttir. Mér fannst miðjumennirnir feyknalega duglegir og hlaupa mikið og ég vildi ekki breyta því. Mér fannst vængmennirnir líka fínir."
,,Þetta var spurning með Kolla og Eið. Þeir voru nánast á síðustu dropunum en þeir eru þannig leikmenn að þeir geta búið til ótrúlegustu hluti. Þeir voru farnir að taka séns Kýpurbúarnir svo þeir voru tveir oft á móti tveimur."
,,Eins og ég sagði við leikinn að við fáum örugglega sókn á þá þar sem við verðum fleiri og þá þurfum við að taka skynsamlegar ákvarðanir. við fengum 2-3 þannig sénsa en tókum ekki alveg réttu ákvörðunina. Ég held að það sé fyrst og fremst þreyta sem veldur því."
Ólafur var einnig spurður út í undirbúning liðsins en ólíkt því sem vaninn er fékk liðið sjálft og Ólafur minni athygli en umræða um eftirmann hans fékk meiri athygli.
,,Umræðan fyrir þennan leik var ekkert öðruvísi en fyrir aðra leiki. Blaðamenn voru fíflaðir upp úr skónum í einn sólarhring og ég held að þeir séu ennþá að reyna að ná sér niður eftir það. Þeir voru hafðir að fíflum nánast. Það var skemmtileg tilbreyting fyrir okkur að sjá að þeir lægu við höggi frekar en við."






















