Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
Haraldur Freyr um völlinn: Hefur bara hellings áhrif
Stefan Ljubicic: Bara teipað og tvær til þrjár verkjatöflur
Óli ekki með miklar áhyggjur af bitleysi Blika - „Eigum eftir að laga þetta“
Stubbur: Jú jú, það var eitthvað að gera
Haddi: Fer ánægður með stigið norður
Lárus Orri: Hann hlýtur að vera í liði umferðarinnar
Davíð Smári: Gaman að byrja þetta með alvöru hvelli
Venni: Honum líður vel og er ekki að fara neitt
Mæta pressulausar inn í tímabilið - „Höfum trú á verkefninu“
„Vorum ekkert sérlega ánægðar með það“
„Vissi að pressan kæmi þegar ég tók við sem þjálfari Breiðabliks“
Myndir: Grétar heppinn að fá ekki rautt?
„Okkur var líka spáð falli í fyrra og við afsönnuðum það“
Efstur á óskalista leikmanna - „Þakklátur og smá meyr“
Linda Líf: Það trylltist allt
Glódís: Ótrúlega stolt að spila fyrir Ísland
Emilía Kiær: Kannski hefði hann farið inn á öðrum degi
Ída Marín: Þessi í markinu var ótrúlega pirrandi
Sveindís: Þetta er ekki bölvun - stundum vantar bara heppnina
„Drullusvekkjandi - áttum skilið meira en núll stig“
   lau 10. september 2011 20:12
Magnús Már Einarsson
Logi Ólafsson: Held að hópurinn sé til í allt saman
Logi Ólafsson hress eftir leikinn í dag.
Logi Ólafsson hress eftir leikinn í dag.
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
,,Menn eru verulega sáttir og ánægðir með þetta," sagði Logi Ólafsson eftir að Selfyssingar tryggðu sér sæti í Pepsi-deildinni að ári með 3-1 sigri á ÍR í dag.

Lestu um leikinn: ÍR 1 -  3 Selfoss

,,Þið hafið verið duglegir við það að finna hverjir aðrir hafa átt möguleika á að fara upp um deild. Ég held að það hafi hreinlega hjálpað okkur og létt pressu af mönnum. Menn hafa lent í því að lenda undir í þrígang eins og gegn Ísafirði og koma síðan til baka og skora sigurmarkið. Ég held að hópurinn sé til í allt saman, við erum búnir að vera í 2. sæti frá því einhverntímann í júní."

Logi býst við að halda sjálfur áfram með liðið en verð miklar breytingar á leikmannahópnum?

,,Það eru menn sem þarf að semja við aftur og síðan eru aðrir með lengri samning eins og gengur og gerist."

Selfyssingar styrktu sig með því að fá erlenda leikmenn fyrir tímabilið og í júlí bættust þrír leikmenn við hópinn, Ingólfur Þórarinsson, Peter Klancar og Ivar Skjerve.

,,Það var nauðsynlegt að ná í þessa menn því erum týndir í leikbönn vegna gulra spjalda og það eru 2-3 í banni hjá okkur í hverjum einasta leik," sagði Logi en Selfyssingar fengu sex gul spjöld í leiknum í dag.

,,Mér fannst þau vera full léttvæg. Mér finnst Vilhjálmur (Alvar Þórarinsson) vera góður dómari og Oddbergur (Eiríksson) vera fyrirmyndaraðstoðardómari en mér finnst stundum eins og það sé verið að flagga þessum gulu spjöldum alltof mikið. Það kann ekki góðri lukku að stýra ef að þú ætlar að stjórna leik með spjöldum. Þá er þetta orðið heil bók í lokin," sagði Logi léttur í bragði að lokum.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
banner
banner