,,Við komumst inn í mótið á sunnudaginn með sigri á KR en duttum aftur út úr þessu í dag. Okkar hlutskipti er greinilega bara að tryggja þetta Evróusæti," sagði Heimir Guðjónsson þjálfari FH eftir 1-1 jafntefli gegn Fram í Pepsi-deildinni í kvöld.
Lestu um leikinn: FH 1 - 1 Fram
Matthías Vilhjálmsson skoraði jöfnunarmark FH í viðbótartíma en Orri Gunnarsson hafði komið Frömurum yfir nokkrum mínútum áður.
,,Það var mikið um feilsendingar og Framararnir voru yfir á flestum sviðum í baráttu, seinni boltum, tæklingum og öllu í þeim dúr. Þetta lagaðist aðeins í síðari hálfleik en miðað við hvað var mikið undir þá hefði maður viljað sjá menn taka aðeins meira á því."
FH-ingar eru eftir jafnteflið í kvöld fjórum stigum á eftir bæði KR og ÍBV þegar þrjár umferðir eru eftir og Heimir telur að titilvonir liðsins séu úr sögunni.
,,Það er búið að henda til okkar líflínu í allt sumar og þetta var mögulega síðasti sénsinn. Við vissum að ÍBV ætti erfiðan leik á móti Stjörnunni, við skíttöpuðum þar 4-0 og KR-ingarnir hafa ekki verið að spila eins vel og þeir gerðu um mitt mót. Ég tel að þetta hafi verið okkar síðasti séns, núna þurfum við að tryggja þetta Evrópusæti," sagði Heimir.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.






















