Logi Ólafsson, þjálfari Selfoss, var hress eftir sigurleik liðsins gegn Fram í kvöld, 2-0.
Lestu um leikinn: Fram 0 - 2 Selfoss
,,Þrjú stig eru alltaf góð, saman hvaðan þau koma. Ekki síst gegn Fram sem fór mikinn í lok síðasta tímabils og eru með gott lið og við vissum að við
þyrftum að berjast fyrir þessu," sagði Logi við Fótbolta.net að leik loknum.
,,Fyrir okkur er þetta flugeldasýning. Fyrir okkur sveitamennina að homa hérna suður yfir heiðar og vinna Fram á Laugardalsvelli, er ekki sjálfgefið. Við
erum mjög ánægðir með þetta og getum gjarnan líkt þessu við flugeldasýningu ef menn vilja það."
Aðspurður hvað hafi verið í gangi í fyrri hálfleik svaraði Logi: ,,Það var knattspyrnuleikur þar sem bæði liðin voru kannski dálítið ákveðinn í að fá ekki
á sig mark og það er stundum ágætis taktík að halda markinu hreinu og eins og góður maður sagði, ef þú heldur hreinu og skorar eitt, vnnuru leikinn," sagði Logi.
Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.






















