„Við Stjórnuðum leiknum fyrstu 45 mínúturnar svo algjörlega að það var bara sorglegt að vera bara með 1-0. Það jafnaðist töluvert mikið leikurinn í seinni hálfleik, það er alveg rétt. Engu að síður þá var ég ósáttur með það að við skildum ekki taka stigin sem voru í boði. Fáum dauðafæri í lokin og ég hefði viljað fá það í netið og taka stigin með mér heim,“ sagði Ólafur Þórðarson eftir leikinn.
Lestu um leikinn: KA 1 - 1 Víkingur R.
„Þetta er eitt stig á erfiðum útivelli en við áttum að gera betur hér í dag.“
Er hann í heildina sáttur með stigið?
„Verður maður ekki að sættast á það, það er bara þannig. Þetta er búið og gert og við breytum því ekki.“
Viðtalið í heild má sjá í sjónvarpinu hér fyrir ofan























