Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 23. febrúar 2016 19:30
Óðinn Svan Óðinsson
Hákon Ingi Einarsson í Þór (Staðfest)
Donni heldur áfram að safna liði
Donni heldur áfram að safna liði
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Skagamaðurinn Hákon Ingi Einarsson hefur gengið til liðs við 1. deildarlið Þórs á Akureyri.

Hákon kemur frá Kára á Akranesi en hann er spilaði 16 leiki með liðinu á síðustu leiktíð í 3.deildinni en hann er uppalinn hjá ÍA.

Hann leikur í stöðu hægri bakvarðar en Gísli Páll Helgason lék í þeirri stöðu síðasta sumar hjá Þór áður en hann hélt til Bandaríkjanna undir lok tímabilsins.

Hákon er fjórði leikmaðurinn sem Þórsara ná sér í, í vetur en áður hafa þeir fengið þá Agnar Darra Sverrisson, Bessa Víðisson og Konráð Frey Sigurðsson.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner