Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 29. júlí 2018 14:57
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Ótrúleg vítaspyrnutækni Jorginho
Jorginho
Jorginho
Mynd: Getty Images
Ítalski landsliðsmaðurinn Jorginho fór ansi óhefðbundna leið að því að taka víti gegn Inter í ICC-æfingamótinu í gær en Chelsea vann í vítaspyrnukeppni.

Jorginho hefur farið vel af stað með Chelsea frá því hann kom frá Napoli í sumar.

Hann spilaði afar vel á æfingamótinu en í gær skoraði hann undarlegt mark í vítaspyrnukeppni gegn Inter.

Hann hljóp að boltanum áður en hann tók hopp og skoraði svo örugglega. Hægt er að sjá vítaspyrnuna hér fyrir neðan. Ótrúleg tækni!



Athugasemdir
banner
banner
banner