Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   sun 12. ágúst 2018 18:36
Arnar Daði Arnarsson
Gunnar Heiðar samningslaus eftir tímabilið: Heyri kannski í öðrum liðum og sé hvað er í boði
Gunnar Heiðar var á skotskónnum í dag.
Gunnar Heiðar var á skotskónnum í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði bæði mörk ÍBV í 2-0 sigri liðsins á FH í Hafnarfirðinum í dag.

Eyjamenn léku glimrandi vel í fyrri hálfleiknum og uppskáru tvö mörk. Allt annað að sjá liðið frá tapinu gegn Fylki á heimavelli í síðustu umferð.

Lestu um leikinn: FH 0 -  2 ÍBV

„Við vorum ekki sáttir með okkar leik þar og okkur fannst við skulda bæði stuðningsmönnum og okkur sjálfum að gera þetta almennilega og við gerðum það í dag. Það er frábært að ná þessum þremur stigum."

„Við sjáum það að við erum með fínt lið og vitum hvað við getum. Við þurfum bara að gera það í hverjum einasta leik, það er næsta skref í þessu öllu saman. Við viljum kíkja upp töfluna og vonandi byrjar það núna. Við þurfum að halda áfram að byggja ofan á það sem við erum að gera og mér finnst vera stígandi í þessu hjá okkur. Næst er það Keflavík heima, það verður erfiður leikur."

Gunnar Heiðar er nú kominn með sex mörk í deildinni í sumar en hann er samningslaus eftir tímabilið.

„Ég vinn bara fyrir liðið og þeir sem fá færin þurfa bara að nýta þau og ég gerði það í dag. Ég er 36 ára núna og samningslaus eftir tímabilið. Maður verður kannski að fara heyra í öðrum liðum og sjá hvað er í boði," sagði markahrókurinn, Gunnar Heiðar að lokum.

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner