Tim Cahill spilaði kveðjuleik sinn með ástralska landsliðinu í 3-0 sigri á Líbanon í vináttuleik í dag.
Hinn 39 ára gamli Cahill fékk heiðursskiptingu á 82. mínútu en hann náði ekki að skora að þessu sinni.
Cahill skoraði samtals 50 mörk í 108 leikjum á ferli sínum með ástralska landsliðinu.
„Þetta er í eina skipti sem þið munið sjá mig gráta," sagði Cahill tárvotur á fréttamannafundi eftir leik.
Cahill er sjálfur á mála hjá Jamshedpur FC í indversku ofurdeildinni í dag.
#ThanksTim pic.twitter.com/41KXSFFTLz
— Caltex Socceroos (@Socceroos) November 20, 2018
Athugasemdir