Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 01. nóvember 2019 06:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Brewster gæti farið á lán í janúar
Rhian Brewster.
Rhian Brewster.
Mynd: Getty Images
Englendingurinn ungi Rhian Brewster átti flottan leik þegar Liverpool sló Arsenal úr leik í enska deildabikarnum á miðvikudaginn.

Þessi ungi og efnilegi framherji fær ekki mikinn spilatíma undir stjórn Jurgen Klopp og enskir fjölmiðlar velta því fyrir sér hvort hann muni fara á lán þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar.

Crystal Palace er sagt mjög áhugasamt um að fá þennan 19 ára gamla sóknarmann á láni í janúar, hann hefur einnig verið orðaður við Bristol City, Swansea og félög í Þýskalandi.

Jurgen Klopp mun því þurfa ákveða það fljótlega hvort að hann sjái Brewster fyrir sér í sínum plönum eftir áramótin.


Athugasemdir
banner
banner
banner