Þær Birta Georgsdóttir og Elín Helena Karlsdóttir eru nýliðar í íslenska landsliðshópnum og ræddu við Snæbjörtu Pálsdóttur hér á Fótbolta.net eftir æfingu sunnudagsins.
Í dag mætir íslenska landsliðið því spænska ytra í undankeppni HM. Leikurinn hefst klukkan 18:00 að íslenskum tíma og verður í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net.
Í dag mætir íslenska landsliðið því spænska ytra í undankeppni HM. Leikurinn hefst klukkan 18:00 að íslenskum tíma og verður í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net.
Lestu um leikinn: Spánn 0 - 0 Ísland
„Geggjað, þetta eru leikmenn sem ég lít upp til og hef litið upp til í einhver ár. Það er geggjað að fá að æfa með þeim og læra af þeim," sagði Elín Helena.
„Stelpurnar hafa tekið mjög vel á móti mér, ég þekki náttúrulega mikið af þeim úr yngri landsliðum og félagsliðum. Þær hafa verið ótrúlega næs og tekið vel á móti mér - þetta er mjög þægilegur hópur að koma inn í. Síðustu dagar hafa verið mjög skemmtilegir," sagði Birta.
Viðtölin tvö má nálgast hér að neðan og á síðunni má einnig finna viðtöl við Þorstein Halldórsson, Glódísi Perlu Viggósdóttur, Hlín Eiríksdóttur og Guðrúnu Arnardóttur.
Birta verður númer 11 í dag og Elín Helena númer 22.
Athugasemdir


