Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
   þri 03. mars 2026 12:07
Elvar Geir Magnússon
Hurzeler: Stundum eyðir Arsenal mínútu í að taka horn
Fabian Hurzeler, stjóri Brighton.
Fabian Hurzeler, stjóri Brighton.
Mynd: EPA
Brighton og Arsenal mætast í ensku úrvalsdeildinni annað kvöld.

Fabian Hurzeler, stjóri Brighton, ræddi um föst leikatriði Arsenal á fréttamannafundi í dag og setur spurningamerki hvað liðið tekur oft langan tíma í þau.

„Stundum eyðir Arsenal einni mínútu í að taka horn ef þeir eru með forystuna," segir Hurzeler sem vill sjá skýrari línu á því hversu miklum tíma má eyða í föst leikatriði.

„Það þarf að vera skýr regla um hversu mikinn tíma má eyða í hornspyrnur, innköst og aukaspyrnur. Ég held að enginn viti það."

„Föstu leikatriðin eru sterk hjá Arsenal, það vita allir. Þeir hafa nýtt þau vel á tímabilinu. Liðið er með góða spyrnumenn og líkamlega sterka leikmenn. Við þurfum að bæta okkur bæði í að nýta föst leikatriði og verjast þeim."

Föstu leikatriðin hafa heldur betur verið áberandi á þessu tímabili í ensku úrvalsdeildinni en hlutfallslega hafa ekki komið eins mörg mörk úr föstum leikatriðum síðan 2009-10.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 30 20 7 3 59 22 +37 67
2 Man City 29 18 6 5 59 27 +32 60
3 Man Utd 29 14 9 6 51 40 +11 51
4 Aston Villa 29 15 6 8 39 34 +5 51
5 Chelsea 29 13 9 7 53 34 +19 48
6 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 29 12 7 10 34 33 +1 43
9 Bournemouth 29 9 13 7 44 46 -2 40
10 Fulham 29 12 4 13 40 43 -3 40
11 Sunderland 29 10 10 9 30 34 -4 40
12 Newcastle 29 11 6 12 42 43 -1 39
13 Brighton 29 9 10 10 38 36 +2 37
14 Crystal Palace 28 9 8 11 30 34 -4 35
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 28 7 8 13 38 43 -5 29
17 Nott. Forest 29 7 7 15 28 43 -15 28
18 West Ham 29 7 7 15 35 54 -19 28
19 Burnley 29 4 7 18 32 58 -26 19
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner