Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
   þri 03. mars 2026 16:15
Kári Snorrason
Tottenham lýsir yfir áhyggjum vegna ósamræmi í dómgæslu
Frá marki Kolo Muani sem var dæmt af.
Frá marki Kolo Muani sem var dæmt af.
Mynd: EPA
Tottenham hefur sent tilkynningu til Howard Webb, yfirmanns dómara hjá dómarasamtökum Englands (PGMOL), þar sem félagið lýsir yfir áhyggjum af mikilvægum dómarákvörðunum.

Erindið snýst fyrst og fremst að því sem félagið telur vera ósamræmi í ákvörðunum sem hafa haft áhrif á hvort mörk standi eða séu dæmd af vegna snertingar innan vítateigs.

Tottenham telur sig hafa orðið fyrir barðinu á slíkum atvikum ítrekað á tímabilinu. Igor Tudor, þjálfari Tottenham, var ósáttur eftir leik liðsins gegn Fulham um helgina og lét gamminn geisa í viðtali eftir leik.

Hann taldi brotið hafa verið á Radu Dragusin í aðdraganda fyrra marks Fulham, með svipuðum hætti og þegar mark Kolo Muani var dæmt af gegn Arsenal viku fyrr.

Tottenham er í 16. sæti deildarinnar, aðeins fjórum stigum frá falli. Liðið mætir Crystal Palace annað kvöld á Tottenham leikvanginum.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 33 21 7 5 63 26 +37 70
2 Man City 32 20 7 5 65 29 +36 67
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Aston Villa 33 17 7 9 47 41 +6 58
5 Liverpool 33 16 7 10 54 43 +11 55
6 Brighton 34 13 11 10 46 39 +7 50
7 Chelsea 34 13 9 12 53 43 +10 48
8 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
9 Bournemouth 33 11 15 7 50 50 0 48
10 Everton 33 13 8 12 40 39 +1 47
11 Sunderland 33 12 10 11 36 40 -4 46
12 Fulham 33 13 6 14 43 46 -3 45
13 Crystal Palace 32 11 10 11 35 36 -1 43
14 Newcastle 33 12 6 15 46 49 -3 42
15 Leeds 33 9 12 12 42 49 -7 39
16 Nott. Forest 33 9 9 15 36 45 -9 36
17 West Ham 33 8 9 16 40 57 -17 33
18 Tottenham 33 7 10 16 42 53 -11 31
19 Burnley 33 4 8 21 34 67 -33 20
20 Wolves 33 3 8 22 24 61 -37 17
Slapp
banner
banner
banner