Inter og Juve vilja Alisson - Man Utd vill annan Bruno - Liverpool og Arsenal fylgjast með Bastoni
   þri 03. mars 2026 09:55
Elvar Geir Magnússon
Rekinn strax eftir 8-0 sigurleik
Filipe Luis var látinn taka pokann sinn.
Filipe Luis var látinn taka pokann sinn.
Mynd: EPA
Brasilíska félagið Flamengo rak stjóra sinn, Filipe Luis, beint eftir að liðið hafði unnið 8-0 sigur gegn Madureira.

Eftir leikinn fór Luis, sem er fyrrum leikmaður Chelsea, á fréttamannafund og að honum loknum var hann kallaður til fundar við Jose Boto, yfirmann fótboltamála.

Þar var Luis tilkynnt um örlög sín en samkvæmt brasilískum fjölmiðlum var fundurinn um 30 sekúndna langur. Luis hafði ekki búist við þessum tíðindum.

Þrátt fyrir þennan stórsigur gegn Madureira er alls ekki ánægja með það hvernig Flamengo hefur farið af stað á tímabilinu. Á síðasta ári vann liðið fjölda titla undir stjórn Luis eða alls sjö. Hann vann titil á að meðaltali fjórtán leikja fresti eftir að hann tók við af Tite í september 2024.

Þetta var fyrsta stjórastarf hins 40 ára gamla Luis en hann var orðaður við Chelsea þegar Enzo Maresca hvarf á braut.
Athugasemdir
banner
banner