Inter og Juve vilja Alisson - Man Utd vill annan Bruno - Liverpool og Arsenal fylgjast með Bastoni
   þri 03. mars 2026 09:45
Elvar Geir Magnússon
Inter og Juve vilja Alisson - Man Utd vill annan Bruno
Powerade
Markvörðurinn Alisson.
Markvörðurinn Alisson.
Mynd: EPA
Bruno Guimaraes.
Bruno Guimaraes.
Mynd: EPA
Alessandro Bastoni.
Alessandro Bastoni.
Mynd: EPA
Góðan og gleðilegan þriðjudag. Ítölsk stórlið vilja markvörð Liverpool, Man Utd vill fyrirliða Newcastle og augu eru á varnarmanni Inter. Þetta og fleira í slúðurpakka dagsins.

Ítölsku félögin Inter og Juventus hafa áhuga á brasilíska markverðinum Alisson (33) hjá Liverpool. (La Repubblica)

Manchester United vill fá Bruno Guimaraes (28), fyrirliða Newcastle, til að fylla skarð Casemiro (34) í sumar. United ætlar að endurnýja miðsvæði sitt og eru með Sandro Tonali og Elliot Anderson líka á blaði. (AS)

Leikmenn Tottenham munu sjálfkrafa lækka í launum ef liðið fellur úr úrvalsdeildinni. (The Athletic)

Hollenski varnarmaðurinn Micky van de Ven (24) hefur ekki áhuga á að framlengja við Tottenham en Barcelona og Real Madrid fylgjast með framvindu mála. (Give Me Sport)

Bayern München leggur áherslu á að gera nýjan samning við enska sóknarmanninn Harry Kane (32) eftir að franski varnarmaðurinn Dayot Upamecano (27) framlengdi í febrúar. (Fabrizio Romano)

Liverpool, Arsenal og Barcelona eru öll að fylgjast með ítalska varnarmanninum Alessandro Bastoni (26) hjá Inter. (Caughtoffside)

Arsenal er líklegast til að hreppa þýska miðjumanninn Leon Goretzka (31) þegar samningur hans rennur út í sumar. Hann vill spila í ensku úrvalsdeildinni þrátt fyrir áhuga frá ítölsku stórliðunum Inter, Juventus og AC Milan. (Christian Falk)

Barcelona er tilbúið að borga uppsett verð Manchester United til að fá enska framherjann Marcus Rashford (28) alfarið. (Mirror)

Manchester City vill fá miðjumanninn Felix Nmecha (25) aftur frá Borussia Dortmund. City losaði hann fyrir fimm árum án þess að hann hafði leikið úrvalsdeildarleik fyrir félagið en Pep Guardiola vill fá hann aftur. (Goal)

Manchester United hefur bætt Niko Kovac (54) hjá Borussia Dortmund á blað sitt yfir mögulega stjóra. (Football Insider)

Real Madrid leiðir kapphlaupið um að fá þýska varnarmanninn Nico Schlotterbeck (26) frá Borussia Dortmund. Vinasamband er milli félagana tveggja. (AS)

Nicolas Jover, sérfræðingur Arsenal í föstum leikatriðum, fær bónusgreiðslu í hvert sinn sem liðið skorar úr þannig stöðum. (Times)
Athugasemdir
banner
banner