Spænski vængbakvörðurinn Adama Traore er í banni frá lyftingarsal West Ham United en þetta sagði Nuno Espirito Santo, stjóri félagsins, á blaðamannafundi í dag.
Traore er einn allra vöðvastæltasti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar og líklega í heimi.
Þrátt fyrir ótrúlegt vaxtarlag sitt er hann einn fljótasti leikmaður liðsins, en hann hefur áður sagt að hann sé ekki mikið í því að lyfta lóðum.
Nuno segir að hann hafi bannað Traore að lyfta lóðum.
„Þetta er ótrúlegt (vöðvabygging Traore). Þetta er genatengt,“ sagði Nuno.
„Genin hans hafa verið svona í einhvern tíma og hann ætti að forðast lyftingarsalinn. Ég sagði honum að halda sér frá lyftingarsalnum. Þetta er eitt af því sem hann þarf að átta sig á því hann er nógu þungur fyrir. Hann heldur áfram að gera fyrirbyggjandi æfingar, en hann er ekki þar til að lyfta lóðum,“ sagði Nuno.
„Sem dæmi erum við með Airidas Golambeckis (18 ára gamall varnarmaður í U21 árs liðinu). Hann eyðir mörgum klukkutímum í lyftingarsalnum. Við verðum að þyngja hann! Hann er einn af þeim sem þarf að byggja upp vöðva, í raun andstæðan við það sem Traore þarf,“ sagði hann enn fremur.
Athugasemdir

