Inter og Juve vilja Alisson - Man Utd vill annan Bruno - Liverpool og Arsenal fylgjast með Bastoni
   þri 03. mars 2026 13:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Sendi skilaboð á þjálfarann og vann sér inn samning í Bestu
Elvar í leik með Þór tímabilið 2022.
Elvar í leik með Þór tímabilið 2022.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Mjög stoltur af árangrinum sem við náðum í fyrra og þvílíkir eðalmenn sem eru í þessu liði!'
'Mjög stoltur af árangrinum sem við náðum í fyrra og þvílíkir eðalmenn sem eru í þessu liði!'
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Á eitt tímabil í Bestu deildinni, með Vestra 2024.
Á eitt tímabil í Bestu deildinni, með Vestra 2024.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Með öflugan vinstri fót.
Með öflugan vinstri fót.
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Uppalinn hjá Völsungi.
Uppalinn hjá Völsungi.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Elvar Baldvinsson var í síðustu tilkynntur sem nýr leikmaður Þórs. Hann kemur frá grönnunum, uppeldisfélaginu Völsungi. Elvar þekkir vel til hjá Þór en hann var leikmaður félagsins fyrir nokkrum árum siðan; lék hluta af tímabilinu 2021 og svo allt tímabilið 2022 í Þorpinu á Akureyri. Hann lagði upp mark í öruggum sigri Þórsara gegn Aftureldingu í síðustu viku.

Elvar er fæddur árið 1997 og er örvfættur varnarmaður. Hann var lykilmaður í liði Völsungs sem hélt sér óvænt þægilega uppi í Lengudeildinni í fyrra. Elvar ræddi við Fótbolta.net um skiptin og ýmislegt annað.

„Tilfinningin er bara mjög góð. Við fjölskyldan eigum heima á Akureyri og erum á Þórssvæðinu, dóttir mín æfir með Þór og var rökréttast fyrir okkur að ég væri að spila hér," segir Elvar sem er staddur í æfingaferð með Þór.

„Ég sendi á Sigga (Sigurð Höskuldsson, þjálfara Þórs) og fékk að æfa með þeim eftir að tímabilinu lauk í fyrra og var á endanum boðinn samningur. Ég er fáránlega spenntur að vera partur af þessum hóp þegar sú Besta byrjar."

Kom ekkert annað til greina en Völsungur
Elvar sneri heim á Húsavík eftir tímabilið 2024, þá var hann búinn að spila tvö tímabil með Vestra á Ísafirði. Var erfitt að yfirgefa Völsung eftir síðasta tímabil?

„Þegar ég kom að vestan kom ekkert annað til greina en að spila fyrir Völsung og gera mitt í að halda liðinu uppi. Tímabilið var mjög mikið upp og niður en oftast upp, og er mjög stoltur af árangrinum sem við náðum í fyrra og þvílíkir eðalmenn sem eru í þessu liði!"

„Það er alltaf erfitt að yfirgefa uppeldisfélagið sitt en eins og ég segi erum við fjölskyldan búsett á Akureyri og það var að taka 3-4 tíma að fara á æfingu, mikill akstur og mikill tími sem fór í þetta. Ég vissi að þetta væri ekki til lengri tíma og er mjög spenntur að vera mættur aftur í Þorpið."


Ungu mennirnir fengu traustið og eru orðnir betri
Finnst þér margt hafa breyst hjá Þór frá því þú varst þar síðast?

„Aðalbreytingin sem ég hef tekið eftir eru ungu leikmennirnir sem hafa verið að fá traustið síðustu ár, þeir eru að stíga mjög mikið upp og eru með stór hlutverk í liðinu. Þeir voru mjög góðir leikmenn þegar ég spilaði síðast með Þór en eru orðnir ennþá betri núna og eru klárir að mínu mati fyrir Bestu deildina þar sem þeir munu sýna hversu mikil gæði þeir hafa."

„Svo ofan á það erum við með góða erlenda leikmenn og alvöru reynslubolta sem eru að hjálpa ungum leikmönnum mjög mikið sem eru að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokksbolta."


Besta tímabilið á ferlinum
Hvernig kom til að þú fórst í Vestra og hvernig var tíminn þar?

„Lífið fyrir vestan var frábært. Eftir tímabilið 2022 með Þór þá fær konan mín spennandi atvinnutækifæri á Ísafirði, hún var ný búin að klára Háskólann á Akureyri og við tókum hálfgerða skyndiákvörðun að flytja vestur."

„Sammi (formaður Vestra) var ekki lengi að frétta að það væri að koma leikmaður vestur frá Akureyri og heyrði fljótlega í mér og ég var búinn að skrifa undir samning hjá Vestra nokkrum vikum eftir að við vorum flutt."

„Tímabilið 2023 var það besta sem ég hef lent í, ég var fljótur að komast inn í hópinn hjá liðinu og fékk mikið traust frá Davíð Smára. Til að byrja með var smá ströggl en svo small þetta saman og við töpuðum varla leik seinni partinn á tímabilinu. Sennilega mitt besta tímabil heilt yfir. Við förum í gegnum umspil og spiluðum í Bestu deildinni 2024."

„Eins og búast mátti við þá lendum við í erfiðleikum yfir tímabilið, meiðsli, oft erfiðar vallaraðstæður og annað, en við náðum að halda okkur uppi."

„Það var frábært að vera fyrir vestan, Vestri hélt vel utan um okkur fjölskylduna og fengum við að kynnast frábæru samfélagi þar. Mjög góð reynsla fyrir mig og fjölskylduna innan sem utan vallar."


Bakvörður en treystir sér í miðvörðinn
Hvort lítur þú á þig sem hafsent eða bakvörð?

„Held það fari pínu eftir því hvernig liðið er sem ég er að spila fyrir. Ég myndi alltaf segja að ég væri bakvörður en ef þjálfarinn myndi spyrja hvort ég treysti mér að taka leik í hafsent þá myndi ég segja já við því. En ég myndi samt segja að ég væri bakvörður í þessari deild."

Ekki fenginn sem byrjunarliðsmaður
Hefur verið rætt við þig um hvert hlutverkið þitt verður á komandi tímabili?

„Já, það var alveg rætt þegar samningaviðræður voru í gangi. Þetta lið er auðvitað fullt af geggjuðum leikmönnum og mikil gæði þannig ég vissi það alveg að ég væri ekki að koma inn í þennan hóp sem byrjunarliðsmaður. Þetta er langt tímabil þannig hópurinn þarf að vera stór og sterkur og liðið þarf að vera tilbúið til að bregðast við öllum aðstæðum sem koma upp í sumar og þá þarf maður að vera klár þegar tækifærin koma!" segir Elvar.
Athugasemdir
banner
banner