Heimir Guðjónsson var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á laugardag. Þar var hann spurður um óvæntan viðskilnað Böðvars Böðvarssonar og FH.
Heimir var þjálfari FH á síðasta ári en samningur hans við Fimleikafélagið var ekki endurnýjaður að tímabilinu loknu. Jóhannes Karl Guðjónsson tók við stjórnartaumunum í vetur og sagði Böðvar í samtali við Fótbolta.net að Jói Kalli hafi ekki séð not fyrir sig í FH.
Böðvar hefur nú samið við ÍA en Heimir segir tíðindin hafa komið sér verulega á óvart.

„Þetta kom mjög á óvart. Ég er örugglega sá þjálfari sem hefur þjálfað Bödda mest og mér finnst Böddi frábær leikmaður. Þetta kom mér mjög á óvart sérstaklega í ljósi þess að hann á tvö ár eftir af samningi.
Mér fannst hann standa sig mjög vel í sumar, sérstaklega þegar leið á mótið. Málið með Bödda er að það elska hann allir – klúbburinn, stuðningsmennirnir og fólkið í Kaplakrika. Þetta kom mjög á óvart en ástæðurnar sem liggja þarna að baki veit ég ekki,“ sagði Heimir að lokum. Útvarpsþáttinn er hægt að nálgast í spilaranum hér að neðan og í öllum helstu streymisveitum.
Athugasemdir