Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
   mán 02. mars 2026 18:00
Brynjar Ingi Erluson
Nefnir tvo leikmenn sem Liverpool ætlar að reyna við
Michael Olise er á óskalista Liverpool
Michael Olise er á óskalista Liverpool
Mynd: EPA
Yan Diomande er sagður raunhæfari kostur
Yan Diomande er sagður raunhæfari kostur
Mynd: EPA
Þýski blaðamaðurinn Florian Plettenberg hjá Sky segir Liverpool horfa til tveggja leikmanna í þýsku deildinni fyrir sumargluggann, en annar þeirra þykir líklegri en hinn.

Liverpool er farið að undirbúa líf eftir Mohamed Salah og eru tveir menn sem gætu leyst stöðu hans í sumar.

Talið er líklegt að Liverpool muni selja Salah til Sádi-Arabíu í sumarglugganum, en frammistaða hans á þessu tímabili hefur verið mikil vonbrigði ef horft er á síðustu tímabil hans.

Liverpool gæti fengið allt að 100 milljónir punda fyrir söluna á Salah, en félagið ætlar að nýta þann pening vel.

Plettenberg segir Liverpool hafa mikinn áhuga þeim Yan Diomande hjá Leipzig og Michael Olise hjá Bayern München.

Diomande er 19 ára gamall og verið að gera gott mót með Leipzig, en hann er talinn verðmetinn á 80 milljónir punda. Diomande er sjálfur opinn fyrir því að fara frá Leipzig í glugganum.

Olise er aðeins flóknara dæmi en hann er ánægður með lífið hjá Bayern sem hefur engan áhuga á að selja. Hann kostaði Bayern 50 milljónir punda árið 2024.

EInhverjir miðlar halda því fram að Olise sé með klásúlu sem virkjast í sumarglugganum en Max Eberl, yfirmaður íþróttamála hjá Bayern, hefur harðneitað að slíkt ákvæði sé í samningnum.

Það þyrfti því verulega háa upphæð til að sannfæra Bayern um að selja Olise en sú upphæð gæti verið 100 milljónir punda eða meira, miðað við það sem hefur verið sagt í fjölmiðlum.

Diomande hefur komið að sautján mörkum með Leipzig á leiktíðinni en Olise komið að 38 mörkum með Bayern.
Athugasemdir
banner
banner
banner