Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
   þri 03. mars 2026 15:10
Elvar Geir Magnússon
Rice væntanlega með gegn Brighton
Mynd: EPA
Miðjumaðurinn Declan Rice fékk högg í 2-1 sigurleik Arsenal gegn Chelsea um síðustu helgi og bað um skiptingu.

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, segir að Rice ætti þó að vera leikfær þegar toppliðið heimsækir Brighton á suðurströndina annað kvöld.

„Ég vonast eftir því, hann er mun betri í dag. Við höfum nánast ekkert æft því við fáum bara tvo daga til undirbúnings en hann verður vonandi góður," segir Arteta.

Markvörðurinn David Raya fann fyrir smá óþægindum eftir leikinn gegn Chelsea en hann er klár í slaginn. Raya átti fantagóðan leik gegn Chelsea.

Martin Ödegaard er tæpur en hann var ekki með gegn Chelsea vegna hnémeiðsla sem hann hlaut í jafnteflinu gegn Brentford í síðasta mánuði. Hann hafði komið af bekknum gegn Tottenham en hafði ekki jafnað sig af fullu og var hvíldur gegn Chelsea.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 33 21 7 5 63 26 +37 70
2 Man City 32 20 7 5 65 29 +36 67
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Aston Villa 33 17 7 9 47 41 +6 58
5 Liverpool 33 16 7 10 54 43 +11 55
6 Brighton 34 13 11 10 46 39 +7 50
7 Chelsea 34 13 9 12 53 43 +10 48
8 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
9 Bournemouth 33 11 15 7 50 50 0 48
10 Everton 33 13 8 12 40 39 +1 47
11 Sunderland 33 12 10 11 36 40 -4 46
12 Fulham 33 13 6 14 43 46 -3 45
13 Crystal Palace 32 11 10 11 35 36 -1 43
14 Newcastle 33 12 6 15 46 49 -3 42
15 Leeds 33 9 12 12 42 49 -7 39
16 Nott. Forest 33 9 9 15 36 45 -9 36
17 West Ham 33 8 9 16 40 57 -17 33
18 Tottenham 33 7 10 16 42 53 -11 31
19 Burnley 33 4 8 21 34 67 -33 20
20 Wolves 33 3 8 22 24 61 -37 17
Slapp
banner
banner