Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
   mán 02. mars 2026 23:01
Brynjar Ingi Erluson
Lengjubikar kvenna: Afturelding burstaði Álftanes
Kvenaboltinn
Karen Dæja skoraði tvennu fyrir Aftureldingu
Karen Dæja skoraði tvennu fyrir Aftureldingu
Mynd: Afturelding
Afturelding 6 - 0 Álftanes
1-0 Karen Dæja Guðbjartsdóttir ('15 )
2-0 Adna Mesetovic ('44 )
3-0 Tinna Guðjónsdóttir ('47 )
4-0 Karen Dæja Guðbjartsdóttir ('64 )
5-0 Lilja Björk Gunnarsdóttir ('71 )
6-0 Ingibjörg Guðný Guðmundsdóttir ('85 )

Afturelding burstaði Álftanes, 6-0, í B-riðli C-deildar Lengjubikarsins á Malbikstöðinni að Varmá í Mosfellsbæ í kvöld. Karen Dæja Guðbjartsdóttir skoraði tvívegis fyrir heimakonur.

Karen setti tóninn á 15. mínútu með góðu marki áður en Adna Mesetovic tvöfaldaði forystuna undir lok fyrri hálfleiks.

Heimakonur héldu uppteknum hætti í þeim síðari með fjórum mörkum. Tinna Guðjónsdóttir skoraði á 47. mínútu og þá bætti Karen við öðru marki sínu tæpum tuttugu mínútum síðar.

Lilja Björk Gunnarsdóttir og Ingibjörg Guðný Guðmundsdóttir skoruðu síðustu tvö mörkin á síðustu tuttugu mínútum leiksins og 6-0 stórsigur niðurstaðan.

Afturelding spilar næst við Augnablik þann 6. mars næstkomandi og vikur síðar spilar Augnablik við Álftanes.
Stöðutaflan Ísland Lengjubikar kvenna
  L U J T ms: mf: mun Stig
Athugasemdir
banner
banner