Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
   þri 03. mars 2026 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Milan íhugar að kæra brasilískt félag til FIFA
Mynd: EPA
Ítalska félagið AC Milan er alvarlega að íhuga að kæra brasilíska félagið Corinthians til alþjóðafótboltasambandsins, FIFA, vegna félagaskipta André til ítalska félagsins.

Milan hafði náð samkomulagi við Corinthians um kaup á hinum 19 ára gamla André Luiz sem spilar sem miðjumaður hjá brasilíska félaginu.

Búið var að ganga frá allri pappírsvinnu en Milan samþykkti að kaupa 70 prósent hlut í leikmanninum fyrir 17 milljónir evra. Þessi 70 prósent eru í eigu Corinthians en Andre á sjálfur 30 prósent, en hefur afsalað hlut sínum til þess að komast til Milan.

Það er hins vegar komið babb í bátinn en forseti Corinthians vill ekki heimila skiptin og segist þurfa meiri umhugsunarfrest.

Þetta hefur ekki fallið í kramið hjá Milan sem er að íhuga að leita réttar síns. Félagið er reiðubúið að kæra vinnubrögð Corinthians til FIFA eða óska eftir skaðabótum vegna félagaskiptanna.

Forsetinn mun taka ákvörðun um framhaldið á næstu dögum.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner