Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
   mán 02. mars 2026 21:31
Brynjar Ingi Erluson
Gæti óvænt snúið aftur
Mynd: EPA
Gennaro Ivan Gattuso, þjálfari ítalska landsliðsins, er alvarlega að íhuga að kalla inn óvænt nafn inn í hópinn fyrir mikilvæga leiki í umspili um sæti á HM.

Hópurinn verður tilkynntur á næstu dögum en Ítalía mætir Norður-Írlandi í undanúrslitum umspilsins og mætir síðan annað hvort Bosníu og Hersegóvína eða Wales í úrslitum.

Gattuso ætlar að gera allt til að koma sínum mönnum áfram og ætlar að sækja einn jóker til þess að ná markmiðinu.

Það er miðjumaðurinn reyndi Marco Verratti, en sá hefur ekki spilað með landsliðinu í þrjú ár eða þegar hann yfirgaf Paris Saint-Germain og fór til Katar.

Hann spilaði með Al Arabi í tvö ár en fór til Al Duhail fyrir þessa leiktíð.

Gattuso er mikill aðdáandi Verratti og tengsl þeirra sögð afar sterkt. Ástæðan fyrir ákvörðun Gattuso er að Verratti sé með þann eiginlega að stýra hraða leiksins og að tæknileg geta hans get skipt sköpum gegn liði eins og Norður-Írlandi.

Verratti, sem er 33 ára gamall, á 55 A-landsleiki og varð Evrópumeistari með Ítalíu árið 2021 ásamt því að hafa lent tvisvar í þriðja sæti Þjóðadeildarinnar.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner