Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
   mán 02. mars 2026 22:44
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Lánsmaður frá Newcastle skoraði tvennu í fyrsta sinn á ferlinum
Matt Targett átti stórleik með Boro
Matt Targett átti stórleik með Boro
Mynd: Middlesbrough
Birmingham 1 - 3 Middlesbrough
0-1 Matt Targett ('13 )
0-2 Matt Targett ('26 )
1-2 Marvin Ducksch ('48 )
1-3 David Strelec ('60 )

Middlesbrough ætlar að veita Coventry City harða samkeppni um titilinn í ensku B-deildinni en liðið vann góðan 3-1 sigur á Birmingham City á St. Andrews' leikvanginum í kvöld þar sem óvæntur leikmaður skoraði sína fyrstu tvennu á ferlinum.

Leikmaðurinn heitir Matt Targett og er á láni hjá Boro frá Newcastle United.

Hann hefur verið óheppinn með meiðsli síðustu ár en blómstrað í liði Boro á tímabilinu og spilað fleiri leiki á þessu tímabili en hann hefur samanlagt gert á síðustu þremur árum.

Targett kom Boro yfir á 13. mínútu er hann fékk langan bolta út á vinstri vænginn, tók boltann á kassann og lagði hann síðan í vinstra hornið. Þrettán mínútum síðar gerði hann annað markið eftir að hafa fengið sendingu úr miðjum teignum. Fyrsta sinn á ferlinum sem hann skorar tvennu og fagnaði hann því vel og innilega.

Marvin Ducksch minnkaði muninn snemma í síðari hálfleik áður en David Strelec gerði út um leikinn hálftíma fyrir leikslok.

Sigur Middlesbrough fleytir liðinu upp í 66 stig, fimm stigum frá toppliði Coventry þegar ellefu umferðir eru eftir.
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 35 21 8 6 72 38 +34 71
2 Middlesbrough 35 19 9 7 54 35 +19 66
3 Millwall 35 18 8 9 47 40 +7 62
4 Ipswich Town 33 17 9 7 59 34 +25 60
5 Hull City 34 18 6 10 56 48 +8 60
6 Wrexham 35 15 12 8 54 45 +9 57
7 Southampton 35 14 11 10 57 46 +11 53
8 Derby County 35 14 9 12 52 46 +6 51
9 Watford 35 13 12 10 45 41 +4 51
10 Bristol City 35 14 8 13 48 44 +4 50
11 Preston NE 35 12 13 10 41 40 +1 49
12 Birmingham 35 13 10 12 46 46 0 49
13 Sheffield Utd 35 15 3 17 50 48 +2 48
14 Stoke City 35 13 8 14 39 34 +5 47
15 QPR 35 13 8 14 46 54 -8 47
16 Swansea 35 13 7 15 40 43 -3 46
17 Norwich 35 13 6 16 47 44 +3 45
18 Charlton Athletic 35 10 11 14 33 44 -11 41
19 Portsmouth 34 10 9 15 34 44 -10 39
20 Blackburn 35 10 8 17 33 46 -13 38
21 West Brom 35 9 8 18 34 52 -18 35
22 Leicester 35 10 10 15 47 56 -9 34
23 Oxford United 35 7 11 17 31 47 -16 32
24 Sheff Wed 35 1 8 26 21 71 -50 -7
Athugasemdir
banner