Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
   þri 03. mars 2026 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Framtíðarmarkvörður Þjóðverja á förum frá Freiburg?
Mynd: EPA
Þýski landsliðsmarkvörðurinn Noah Atubolu gæti yfirgefið Freiburg í sumarglugganum en þetta segir Fabrizio Romano á X.

Atubolu er 22 ára gamall og er einn af varamarkvörðum þýska landsliðsins.

Hann hefur getið sér gott orð með Freiburg á síðustu árum og talinn með bestu markvörðum deildarinnar.

Samningur Atubolu rennur út á næsta ári og kemur ekki til greina að framlengja samninginn sem gæti neytt Freiburg til þess að selja hann í sumar.

Fjölmörg félög í Evrópu fylgjast með stöðu leikmannsins en á síðustu árum hefur hann verið orðaður við Arsenal, Bayer Leverkusen, Inter, Milan, Manchester United, Napoli, Tottenham og Paris Saint-Germain.

Atubolu þreytti frumraun sína með Freiburg árið 2022 og verið aðalmarkvörður liðsins síðan. Hann á 32 landsleiki fyrir yngri landslið Þýskalands og var í U21 árs liðinu sem hafnaði í öðru sæti Evrópumótsins á síðasta ári.
Athugasemdir
banner