Mario Balotelli, sóknarmaður Brescia, heldur áfram að skrópa á æfingar. Hann mætti ekki á æfingu í morgun.
Þessi 29 ára leikmaður hefur lítið verið að mæta til æfinga að undanförnu og eigandinn Massimo Cellino viðurkenndi að félagið hafi gert mistök með því að fá hann.
Þessi 29 ára leikmaður hefur lítið verið að mæta til æfinga að undanförnu og eigandinn Massimo Cellino viðurkenndi að félagið hafi gert mistök með því að fá hann.
Líklegt er talið að Balotelli hafi leikið sinn síðasta leik fyrir Brescia. Þrátt fyrir að tvö ár séu eftir af samningi hans þá fellur hann úr gildi ef Brescia fellur.
Brescia er í neðsta sæti, níu stigum frá öruggu sæti, og allt stefnir í að liðið leiki í B-deildinni á næsta tímabili. Birkir Bjarnason er meðal leikmanna liðsins.
Athugasemdir