Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   mið 04. júní 2025 10:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Framlengir við KR í meiðslunum - Gæti spilað í lok móts
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stefán Árni Geirsson, leikmaður KR, hefur framlengt samning sinn við félagið út tímabilið 2026. Fyrri samningur hefði runnið út í nóvember.

Stefán Árni er 24 ára sóknarsinnaður miðjumaður sem uppalinn er hjá KR. Í lok undirbúningstímabilinu meiddist hann illa og ljóst að hann yrði frá næstu mánuðina.

Hann bæði fótbrotnaði og fór úr ökklalið.

Í upphafi var ekki búist við að Stefán Árni gæti nokkuð spilað tímabilið 2025, yrði jafnvel frá í tólf mánuði, en bjartsýnustu menn í Vesturbænum hafa nú trú á því að Stefán Árni nái jafnvel að snúa aftur á völlinn fyrir lok tímabilsins.

Hann á að baki 136 meistaraflokksleiki og hefur í þeim skorað 20 mörk. Hann lék þá á sínum tíma 14 leiki fyrir yngri landsliðin.
Athugasemdir