Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   mið 04. júní 2025 07:00
Elvar Geir Magnússon
Glasgow
Kemst Jói Berg í hundrað leikja klúbbinn á föstudaginn?
Jóhann Berg Guðmundsson.
Jóhann Berg Guðmundsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á föstudagskvöld, klukkan 18:45 að íslenskum tíma, mun íslenska landsliðið leika vináttulandsleik gegn Skotlandi á Hampden Park í Glasgow.

Arnar Gunnlaugsson heldur áfram að vinna með sínar áherslur í aðdraganda undankeppni HM sem hefst í haust.

„Þetta er gríðarlega mikilvægur gluggi þó þetta séu æfingaleikir. Nýr þjálfari er með nýjar áherslur og miklar áherslubreytingar. Þetta er fótbolti sem margir í þessu liði hafa ekki spilað og þetta tekur auðvitað tíma," segir reynsluboltinn Jóhann Berg Guðmundsson.

„Það er mjög gott að fá þessa leiki. Síðustu leikir (gegn Kósovó) voru ekki eins og við viljum hafa þá en við getum lært ansi mikið af þeim. Við höfum farið vel yfir það. Það var margt gott en við skiljum að umfjöllunin var frekar neikvæð. Fótbolti snýst um að vinna leiki en gott að fá þessa leiki til að gera okkur klára fyrir undankeppnina í september."

Ef Jóhann Berg spilar á föstudag kemst hann í hundrað leikja klúbb íslenska landsliðsins. Hann hefur leikið 99 landsleiki og skorað átta mörk.

„Ég missti af síðasta leiknum (úti í Sádi-Arabíu) vegna meiðsla í læri. Það virðist vera að þegar landsleikjagluggi er að mæta og hundraðasti leikurinn á næsta leiti þá virðist eitthvað bregðast í líkamanum en við verðum í fínu standi þegar þessir leikir koma," segir Jóhann brattur.

„Hampden Park er frábær völlur og Skotland er gott lið. Það eru frábærir leikmenn í skoska liðinu og þetta verður gott próf. Vonandi getum við sýnt betri frammistöðu en við gerðum síðast."
Jói Berg og Bruno ræddu um Sádi-Arabíu - „Ekki bara að hugsa um peningana“
Athugasemdir
banner