Alekss Kotlevs hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við Breiðablik.
Hanner sautján ára varnarmaður, fæddur 2008, sem er með tvöfalt ríkisfang, þ.e. íslenskt og lettneskt.
Fjallað hefur verið um Alekss síðastliðið ár þar sem hann fór á reynslu til sænsku meistaranna í Malmö og danska félagsins Viborg.

Alekss lék sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk Breiðabliks í febrúar þegar hann kom inn á í leik í Lengjubikarnum.
Hann á að baki þrjá leiki fyrir U15 landslið Íslands og átta leiki fyrir U16/U17 landslið Letta. Samningur hans við Breiðablik gildir út tímabilið 2028.
Athugasemdir