Manchester City hefur gengið frá samkomulagi við AC Milan um kaup á hollenska miðjumanninum Tijjani Reijnders fyrir 46 milljónir punda.
Reijnders, sem er 26 ára og á 22 landsleiki fyrir Holland, mun skrifa undir samning til fimm ára og fær um 200 þúsund pund á viku. Kaupin eruhluti af undirbúningi Pep Guardiola til að styrkja lið City eftir erfitt tímabil.
Reijnders var lykilmaður hjá AC Milan og hlaut viðurkenningu sem besti miðjumaðurinn í Serie A á liðnu tímabili. Hann vakti einnig athygli með framúrskarandi frammistöðu gegn Real Madrid í Meistaradeildinni.
Guardiola hefur valið hann sem arftaka Kevin De Bruyne, sem er í viðræðum um að ganga til liðs við Napoli. Reijnders mun ljúka læknisskoðun í næstu viku, þar sem hann er nú í landsliðsverkefni með Hollandi.
Manchester City á einnig í viðræðum um kaup á vinstri bakverðinum Rayan Aït-Nouri frá Wolves, og búist er við að samkomulag náist fljótlega.
Athugasemdir