Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
banner
   mið 04. júní 2025 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Segir frá ótrúlegum launapakka Inzaghi
Mynd: EPA
Simone Inzaghi þjálfari Inter er að taka við Al-Hilal í Sádi-Arabíu. Fótboltafréttamaðurinn Fabrizio Romano segir þetta og nefnir himinháan launapakka ítalska þjálfarans.

Inzaghi mun fá 26 milljónir evra í árslaun eftir skatt, sem samsvarar 500 þúsund evrum á viku. Samningurinn gildir í tvö ár, eða til sumarsins 2027.

Hans fyrsta verkefni verður að sannfæra Theo Hernández um að skipta úr ítalska boltanum og til Al-Hilal, en félagið er þegar búið að ná samkomulagi við AC Milan um kaupverð.

Al-Hilal er einnig orðað við fleiri stóra bita úr ítalska boltanum og gæti Inzaghi hjálpað félaginu að tryggja sér þjónustu þeirra fyrir upphafsflautið á HM félagsliða í sumar.

Al-Hilal er með Real Madrid, RB Salzburg og Pachuca í riðli á HM.
Slapp
Athugasemdir
banner