Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   mið 04. júní 2025 12:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Skiptir á milli keppinauta daginn eftir leikinn á Íslandi
Kvenaboltinn
Katoto skrifar undir hjá Lyon.
Katoto skrifar undir hjá Lyon.
Mynd: Lyon
Franska markamaskínan Marie Antoinette Katoto hefur skrifað undir samning við Lyon sem gildir til ársins 2029.

Þetta eru athyglisverð skipti þar sem Katoto hefur verið á mála hjá Paris Saint-Germain, helstu keppinautum Lyon, frá því hún var 13 ára gömul.

Katoto hefur skorað 180 mörk í 223 leikjum fyrir Lyon og þá hefur jafnframt gert 37 mörk í 53 landsleikjum fyrir Frakkland.

Hún er einhver mesti markaskorari sem finnst í fótboltanum en henni tókst samt sem áður ekki að skora gegn Íslandi í Þjóðadeildinni í gær. Hún byrjaði fyrir Frakkland í leiknum.

Lyon er sigursælasta kvennaliðið í Frakklandi en liðið er ríkjandi meistari.
Athugasemdir