Það bárust áhugaverðar fréttir um daginn að Manchester City væri að sækja tvo þjálfara með Liverpool tengingu; Pepijn Lijnders og Kolo Toure.
Tíðindin með Lijnders koma sérstaklega á óvart en hann var aðstoðarmaður Jurgen Klopp til margra ára.
Tíðindin með Lijnders koma sérstaklega á óvart en hann var aðstoðarmaður Jurgen Klopp til margra ára.
Núna heldur City áfram sækja starfsfólk með tengingu við Liverpool því James French er að fara yfir.
French hefur starfað sem leikgreinandi fyrir Liverpool í 13 ár og hefur hann lagt áherslu á að skoða andstæðinga.
Hann kom inn í stjóratíð Brendan Rodgers en hefur einnig unnið með Klopp og Arne Slot.
Núna mun hann koma inn í teymið hjá Guardiola sem heldur áfram að sanka að sér fólki með Liverpool tengingu fyrir komandi keppnistímabil.
Athugasemdir