Heimild: Fotbolldirekt
B-deildin í Svíþjóð hefst í kvöld en tveimur Íslendingaliðum er spáð tveimur efstu sætunum og ef spáin gengur eftir munu þau því spila í efstu deild á næsta tímabili.
Norrköping féll úr efstu deild á síðasta tímabili eftir tap í umspili gegn Örgryte, liðinu er spáð efsta sæti deildarinnar. Arnór Ingvi Traustason, Ísak Andri Sigurgeirsson og Jónatan Guðni Arnarsson voru leikmenn liðsins en þeir hafa allir leitað á önnur mið. Ari Freyr Skúlason er aðstoðarþjálfari.
Värnamo er spáð öðru sæti og ef spáin gengur eftir mun liðið fara beint upp aftur en eins og Norrköping þá féll liðið úr efstu deild í fyrra.
Srdjan Tufegdzic, Túfa, tók við sem þjálfari liðsins eftir að hafa verið rekinn úr starfi hjá Val eftir síðasta tímabil. Hann sótti Loga Hrafn Róbertsson frá króatíska liðinu NK Istra.
Þess má til gamans geta að Norrköping fær Värnamo einmitt í heimsókn í fyrstu umferð klukkan 10:30 í fyrramálið.





