Ederson, miðjumaður Atalanta, hefur samþykkt samningstilboð frá Atletico Madrid. Fabrizio Romano greinir frá þessu.
Ederson hefur verið fastamaður í liði Atalanta síðan hann gekk til liðs við félagið frá Salernitana árið 2022. Hann hefur aðeins verið óheppinn með meiðsli á yfirstandandi tímabili.
Hann var hluti af liðinu sem vann Evrópudeildina og tapaði í úrslitum ítalska bikarsins tímabilið 2023/24.
Hann hefur verið orðaður við Manchester liðin og er metinn á 40 milljónir evra en samningur hans við ítalska félagið rennur út árið 2027.




