Fyrsta skotmark De Zerbi - Man Utd fylgist með miðverði Benfica - Kofane til Arsenal - Hvað verður um Kounde og Dumfries?
banner
   fös 03. apríl 2026 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sancho meiddur á öxl - Frá næstu vikurnar
Mynd: EPA
Jadon Sancho verður frá næstu vikurnar vegna meiðsla sem hann varð fyrir í æfingaleik með Aston Villa gegn Elche á dögunum.

Aston Villa mætti Elche í æfingaleik í landsleikjahléinu en enska liðið tapaði 2-1. Pau Torres kom liðinu yfir.

Sancho var í byrjunarliðinu en þurfti að fara af velli vegna axlarmeiðsla sem hann varð fyrir undir lok leiksins þegar hann lenti illa á öxlinni.

The Athletic segir að hann verði líklega fjarverandi í tvær til þrjár vikur.
Slapp
banner
banner