Chris Waddle, fyrrum leikmaður Newcastle og enska landsliðsins, telur að Elliot Anderson muni frekar ganga til liðs við Newcastle en Man City.
Anderson er uppalinn hjá Newcastle en félagið seldi hann til Nottingham Forest árið 2023 til að standast fjármálareglur úrvalsdeildarinnar.
Anderson er uppalinn hjá Newcastle en félagið seldi hann til Nottingham Forest árið 2023 til að standast fjármálareglur úrvalsdeildarinnar.
Newcastle seldi hann á 35 milljónir punda en verðið á honum hefur hækkað töluvert síðan þar sem hann hefur sprungið út hjá Forest og er á góðri leið með að komast í HM hóp landsliðsins. Man City og Man Utd hafa sýnt honum áhuga.
„Hann er stuðningsmaður Newcastle. Hann trúði því líklega ekki þegar hann var seldur til Forest til að byrja með en hann er að njóta þess að spila, hann er í enska hópnum og það lítur út fyrir að hann fari á HM," sagði Waddle.
„Hann mun ekki drífa sig en möguleikinn á að fara aftur til Newcastle? Éeg er viss um að hann vildi alltaf spila í svarthvíta búningnum og ég er viss um að hann sé til í það. En aftur, það er mikil samkeppni."

