Andoni Iraola, stjóri Bournemouth, er spennandi kostur fyrir mörg félög en hann hefur m.a. verið orðaður við Crystal Palace.
Oliver Glasner mun yfirgefa Palace í sumar en Sky Sports segir frá því að félagið muni ólíklega ná að sannfæra Iraola um að taka við liðinu og þurfi því að finna aðra kosti. Samningar Glasner og Iraola renna út í sumar.
Bournemouth hefur boðið Iraola nýjan samning en hann hefur ekki tekið ákvörðun og ekki er búist við því að hann taki ákvörðun fyrr en eftir tímabilið.
Það gæti margt gerst á þjálfaramarkaðnum í sumar og eitthvað spennandi komið upp á borðið fyrir hann. Hann hefur verið orðaður við Athletic Bilbao en þar ólst hann upp og spilaði nær allan sinn feril sem leikmaður hjá liðinu.

