Phil Foden hefur verið í vandræðum að undanförnu en hann hefur fengið lítið að spila hjá Man City.
Hann var í enska landsliðshópnum í landsleikjahléinu en Thomas Tuchel talaði opinskátt um Foden eftir slæman leik í 1-0 tapi gegn Japan.
Hann var í enska landsliðshópnum í landsleikjahléinu en Thomas Tuchel talaði opinskátt um Foden eftir slæman leik í 1-0 tapi gegn Japan.
„Hann reyndi allt. Ég myndi segja að hann var frábær á æfingum en hann á erfitt með að sýna það á vellinum. Hann hefur ekki fengið margar mínútur hjá City að undanförnu. Hann kemur svo í landsliðið skælbrosandi og var góður á æfingum," sagði Tuchel.
„Og ég hélt að hann myndi koma okkur á óvart og spila af sama krafti og spennu en já, hann á erfitt með að ná sem bestum árangri.“
Gabby Agbonlahor, sérfræðingur hjá TalkSPORT, telur að það yrði best fyrir Englendinginn að yfirgefa Man City.
„Hann hefur lært mikið af 'Hann æfði mjög vel en gat ekki sýnt það í leikjum.' Það er eitthvað sem þú vilt aldrei heyra sem leikmaður, æfingaleikmaður," sagði Agbonlahor.
„Hann sannaði það gegn Úrúgvæ og Japan að hann væri ekki sami gamli Phil Foden. Það gerist, kannski þarf hann að yfirgefa Man City. City heldur áfram að styrkjast og hann fær ekki spiltímann."



