Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 05. september 2018 09:58
Magnús Már Einarsson
Mynd af reykingum tékkneska landsliðsins vekur athygli
Icelandair
Tékkar fagna marki sínu í gær.
Tékkar fagna marki sínu í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tékkland gerði út um vonir Íslands um að komast í umspil um sæti á HM kvenna eftir 1-1 jafntefli liðanna í Laugardalsvelli í gær.

Jafntefli varð einnig niðurstaðan í leik liðanna ytra í fyrra.

Hrafnhildur Agnarsdóttir birti í morgun mynd á Twitter sem hefur vakið mikla athygli.

Þar sjást leikmenn Tékka reykja sígarettu og drekka Coca-Cola fyrir utan Tryggingamiðstöðina.

Reykingar eru alls ekki algengar hjá fótboltamönnum í fremstu röð í dag þó að þær hafi verið það í meira mæli á árum áður.

Myndin er hér að neðan en hún hefur vakið mikla athygli á Twitter.

Athugasemdir
banner
banner
banner