Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 06. mars 2020 21:22
Brynjar Ingi Erluson
Holland: Elías Már skoraði tvö í sigri Excelsior
Elías Már hefur verið magnaður á tímabilinu
Elías Már hefur verið magnaður á tímabilinu
Mynd: Getty Images
Elías Már Ómarsson skoraði tvö mörk er Excelsior vann MVV Maastricht 3-0 í hollensku B-deildinni í kvöld. Hann hefur verið frábær með liðinu á leiktíðinni og skorað níu mörk eftir áramót.

Elías Már gekk til liðs við Excelsior frá Gautaborg sumarið 2018 en hann skoraði sjö mörk í hollensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili er liðið féll.

Hann hefur verið frábær með liðinu seinni hluta leiktíðarinnar og skorað níu mörk á þessu ári.

Hann gerði tvö mörk í 3-0 sigri liðsins í kvöld og er því kominn með ellefu mörk í heildina á tímabilinu auk þess sem hann hefur lagt upp fjögur.

Elías lék allan leikinn en hann gerði fyrsta mark liðsins á 64. mínútu áður en Rai Vloet bætti við öðru. Elías gerði svo þriðja markið fjórum mínútum síðar.

Excelsior er í sjöunda sæti deildarinnar og er að berjast um umspilssæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner