Breska blaðið Guardian fékk fyrirspurn sem tengist íslensku landsliðskonunni Söndru Maríu Jessen í lið sem kallast 'The Knowledge' en þar geta lesendur sent hinar ýmsu spurningar, oft sérkennilegar, varðandi fótbolta.
Lesandi sem heitir James Vortkamp-Tong sendi fyrirspurnina:
„Fyrir nokkrum vikum byrjaði Sandra Jessen með FC Köln gegn Essen. Er þetta í fyrsta skipti sem leikmaður sem ber nafn andstæðingana í leik sem hann tekur þátt í?“

Í svarinu kemur reyndar fram að þetta hafi reyndar ekki einu sinni verið í fyrsta sinn sem Sandra leikur gegn Essen.
Hin ýmsu dæmi eru síðan nefnd, til dæmis að Conor Coventry hafi spilað með Charlton gegn Coventry á þessu tímabili.
Milan Baros, Pjanic, Skriniar og Badelj eru meðal manna sem heita Milan og hafa spilað gegn AC Milan.
Alessandro Romagnoli hefur spilað gegn Roma, Antonio Valencia lék með Manchester United gegn Valencia, Mike England lék fyrir velska landsliðið gegn Englandi og Bobby Charlton skoraði gegn Charlton svo eitthvað sé nefnt.
Þó ekki sé farið út í það í grein Guardian þá væri líka hægt að finna mörg dæmi í íslenska boltanum um að Valur hafi mætt Val og Þór leikið gegn Þór og við gætum haldið áfram.
Smelltu hér til að skoða grein Guardian
Athugasemdir