Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
   mið 04. mars 2026 10:34
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ólýsanlega stoltur af dóttur sinni sem fékk mikið lof frá sérfræðingum
PEI
'Ég varð svo stolt af mér og ánægð og fór strax að æfa á fullu'
'Ég varð svo stolt af mér og ánægð og fór strax að æfa á fullu'
Mynd: KSÍ
'Fyrsti (byrjunarliðs)leikurinn hennar og hún var frábær í dag'
'Fyrsti (byrjunarliðs)leikurinn hennar og hún var frábær í dag'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hermann spilaði 89 landsleiki á sínum ferli og skoraði fimm landsliðsmörk.
Hermann spilaði 89 landsleiki á sínum ferli og skoraði fimm landsliðsmörk.
Mynd: Fótbolti.net - Jón Steinarr
Ída Marín Hermannsdóttir átti mjög góðan leik þegar Ísland mætti Spáni í gær. Ída var óvænt í byrjunarliðinu, fékk kallið í landsliðið í fyrsta sinn frá 2022 og greip tækifærið. Ída spilar með FH í Bestu deildinni og hefur undanfarin ár spilað í bandaríska háskólaboltanum á veturna.

Lestu um leikinn: Spánn 3 -  0 Ísland

Hrós frá sérfræðingunum
„Ég verð bara að fá að nefna Ídu Marín, mér fannst hún frábær í þessum leik. Hún er ekki varnarsinnaður miðjumaður, hélt stöðu mjög vel og það var kraftur í henni allan leikinn. Varnarlega var hún frábær og skilaði boltanum vel frá sér. Fyrsti (byrjunarliðs)leikurinn hennar og hún var frábær í dag. Hún er að spila hérna á Íslandi, spilað tvo leiki í Lengjubikarnum, hrós á það að vera í svona standi," sagði Adda Baldursdóttir í Stofunni á RÚV þar sem leikurinn var gerður upp. Ída er í grunninn sóknarsinnaður miðjumaður en þurfti að sinna mikilli varnarvinnu gegn besta liði heims í gær.

„Hún var mjög góð, oft klókindi í henni, var að fá boltann og nýtti líkamann til að sækja aukaspyrnur. Ég var mjög hrifinn af hennar frammistöðu," sagði Albert Brynjar Ingason.

Var á æfingu með pabba sínum þegar kallið kom
„Ég var á æfingu með pabba mínum, vorum nýbúin að klára skotæfingu og ég var ótrúlega móð. Síðan hringir Steini, ég var fyrst bara „hvað er að gerast?" Síðan segir hann að ég sé í landsliðshópnum. Ég varð svo stolt af mér og ánægð og fór strax að æfa á fullu. Ég var að spila í Bandaríkjunum út nóvember og ég er búin að halda mér í góðu standi síðan þá. Ég er útskrifuð núna, en vanalega hef ég verið allt árið að spila á fullu," sagði Ída í viðtali við Fótbolta.net eftir leikinn í gær. Faðir hennar er fyrrum landsliðs- og atvinnumaðurinn Hermann Hreiðarsson sem er í dag þjálfari karlaliðs Vals.

Hemmi ólýsanlega stoltur
„Þvílík innkoma! Ólýsanlega stoltur af Ídu okkar í sínum fyrsta keppnisleik með A landsliðinu. Það er ekkert gefins - vinnusemi, metnaður og dugnaður hefur komið þér þangað sem þú ert. Hörkudugnaður hjá liðinu sem heild á móti öflugum andstæðingum. Áfram Ísland!" skrifaði Hermann á Instagram eftir leikinn í gær.


Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Athugasemdir
banner