Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 06. júlí 2019 18:26
Ívan Guðjón Baldursson
3. deild: KF með stórsigur í Sandgerði
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Reynir S. 1 - 5 KF
0-1 Vitor Vieira Thomas ('3)
0-2 Alexander Már Þorláksson ('20, víti)
1-2 Markaskorara vantar ('31)
1-3 Ljubomir Delic ('36)
1-4 Alexander Már Þorláksson ('45)
1-5 Jakob Auðun Sindrason ('60)

KF er komið aftur upp í þriðja sæti 3. deildar karla eftir stórsigur á gegn Reyni í Sandgerði.

Gestirnir lentu ekki í erfiðleikum og skoraði Vitor Vieira Thomas eftir aðeins þriggja mínútna leik. Alexander Már Þorláksson tvöfaldaði forystuna úr vítaspyrnu áður en heimamenn komu sér aftur inn í leikinn með marki.

Ljubomir Delic tvöfaldaði forystu KF á nýjan leik og gerði Alexander Már sitt annað mark rétt fyrir leikhlé. Staðan orðin 1-4 og svo gott sem úti um leikinn.

Jakob Auðun Sindrason gerði eina mark seinni hálfleiksins og lokatölur 1-5.

KF er þremur stigum frá toppliði KV á meðan Reynir er í fimmta sæti, sjö stigum eftir KF.

Markaskorarar af urslit.net
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner