Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 08. febrúar 2020 07:00
Elvar Geir Magnússon
Sindri markvörður framlengir við Keflavík
Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Markvörðurinn Sindri Kristinn Ólafsson hefur framlengt samning sinn við Keflavík til næstu tveggja ára.

Sindri hefur leikið 88 leiki fyrir meistaraflokk félagsins og 17 leiki með yngri landsliðum Íslands.

„Sindri hefur verið að skoða aðstæður erlendis síðustu misseri en ákvað að taka slaginn áfram með okkur," segir í tilkynningu Keflvíkinga.

„Knattspyrnudeildin er himinlifandi með þetta og tilhlökkunin fyrir sumrinu eykst með degi hverjum."

Sindri er 23 ára en Keflavík hafnaði í 5. sæti 1. deildarinnar á síðasta tímabili.

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari Keflavíkur, verður gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner