Birkir Bjarnason stóð vaktina á miðjunni í 1-0 sigri landsliðsins gegn Albaníu á Laugardalsvelli í dag.
Birkir Bjarnason átti sendingu á Jóhann Berg sem skilaði sigurmarki leiksins í fyrri hálfleik.
Birkir Bjarnason átti sendingu á Jóhann Berg sem skilaði sigurmarki leiksins í fyrri hálfleik.
Lestu um leikinn: Ísland 1 - 0 Albanía
„Síðasti leikur sem ég spilaði var síðasti landsleikur gegn Frakklandi. Það eru nokkrir mánuðir síðan en ég er búinn að ná að æfa mjög vel og halda mér í form," sagði Birkir sem leið vel í leiknum.
Hann segir fyrri hálfleikinn hafa verið góðan hjá íslenska liðinu.
„Í seinni hálfleiknum vorum við meira í því að reyna vera klókir og reyna ná í þrjú stig. Við vorum ekkert að sækja á of mörgum mönnum. Sem tókst mjög vel og við náðum í þrjú stig."
„Ég var liggjandi í grasinu en ég sá þegar hann setti hann í markið," sagði Birkir þegar hann lýsti íslenska markinu en Birkir lá á vellinum eftir tæklingu.
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir