Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 09. júní 2019 15:20
Ívan Guðjón Baldursson
HM kvenna: 34 ára Cristiane setti þrennu
Mynd: Getty Images
Brasilía 3 - 0 Jamaíka
1-0 Cristiane ('15)
2-0 Cristiane ('50)
3-0 Cristiane ('64)

Hin 34 ára gamla Cristiane varð í dag elsti leikmaður í sögu HM til að skora þrennu í sama leik.

Cristiane gerði öll mörk leiksins er Brasilía lagði Jamaíku að velli. Andressa lagði fyrstu tvö mörkin upp og klúðraði vítaspyrnu.

Brasilía var betri aðilinn allan leikinn eins og við mátti búast en leikmenn Jamaíku lögðu allt í sölurnar og komust nokkrum sinnum nálægt því að skora.

Þetta var lífleg frammistaða hjá Jamaíku sem var ansi óheppið með riðil. Ástralía og Ítalía eru einnig í riðlinum.
Athugasemdir
banner
banner
banner