„Það þurfti einhver að klára þetta," sagði Hjörleifur Þórðarson, fyrirliði Vængja Júpíters, eftir að liðið tryggði sér sæti í 3. deildnni í kvöld eftir 1-1 jafntefli gegn Augnablik.
Hjörleifur skoraði markið sem að skilaði liðinu upp um deild en það gerði hann með skoti af mjög löngu færi. Lokatölur í kvöld urðu 1-1 en Vængirnir fóru áfram samanlagt 2-1.
„Þetta var mjög skemmtilegt einvígi. Við höfum mæst áður og það er léttur rígur. Við þekkjumst margir og Grass-vélin tengir þetta svolítið. Liðin voru ekki að opna sig mikið og þetta var mjög skemmtilegt," sagði Hjörleifur en Vængirnir munu nú leika í 3. deild næsta sumar.

„Það er meiri pakki. Við sendum einn út í viðskiptaferð til Boston og það er möguleiki að það komi erlendur fjárfestir inn í þetta," sagði Hjörleifur léttur í bragði.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.